Tókýó, Nagoya og þrír dagar á Suzuka
3 nætur
Dagur 1
Velkomin til Tókýó: kvöld í Asakusa
Mánudagur 5. apríl 2027. Við tökum á móti hópnum á Narita-flugvelli við komu ráðlagða flugsins og förum saman á hótelið í Asakusa. Eftir innritun röltum við saman um gamla hverfið þegar kvölda tekur: í gegnum Kaminarimon-hliðið, eftir Nakamise-verslunargötunni og að Sensō-ji, elsta hofi Tókýó, sem er fallega upplýst á kvöldin. Tokyo Skytree gnæfir yfir hverfinu og er í göngufæri. Dagskrá: Koma til Narita → sameiginleg ferð á hótel → innritun → móttaka og kvöldrölt um Asakusa, Nakamise og Sensō-ji með Kristjáni Einari, Braga Þórðarsyni og starfsfólki Trip To Japan → valfrjálst: útsýni úr Tokyo Skytree.
Bus
Sameiginleg ferð fyrir þau sem koma með ráðlögðu flugi. Þau sem koma á öðrum tíma komast á hótelið á eigin vegum og fá leiðbeiningar fyrir brottför.

Asakusa, Taito City, Tokyo 111-0032, Japan
Hverfið í kringum hótelið, þar sem gamla Tókýó lifir enn í þröngum götum, litlum verslunum og matsölustöðum.

2-chōme-3-1 Asakusa, Taito City, Tokyo 111-0032, Japan
Dagur 2
Tókýó: Meiji Jingu, Harajuku og Shibuya
Þriðjudagur 6. apríl 2027. Við kynnumst ólíkum hliðum Tókýó. Morgninum verjum við við Meiji Jingu, einn helsta helgidóm borgarinnar, umkringdan skógi í miðri stórborginni. Þaðan er stutt yfir í Harajuku, miðstöð götutísku, og síðan liggur leiðin til Shibuya, þar sem þú færð tíma til að njóta borgarlífsins og finna eitthvað gott að borða. Bílaáhugafólk getur endað daginn á valfrjálsri kvöldferð á hið goðsagnakennda Daikoku-bílastæði. Dagskrá: Brottför frá hóteli → Meiji Jingu → Harajuku og Takeshita-gata → hádegisverður á eigin kostnað → Shibuya Crossing og frjáls tími → valfrjálst: JDM-kvöldferð á Daikoku.

1-1 Yoyogikamizonochō, Shibuya, Tokyo 151-8557, Japan
Einn helsti helgidómur Tókýó, tileinkaður Meiji-keisara og umkringdur skógi í hjarta borgarinnar.

Harajuku, Jingumae, Shibuya, Tokyo 150-0001, Japan
Dagur 3
Tókýó á þínum hraða
Miðvikudagur 7. apríl 2027. Dagurinn gefur þér svigrúm til að upplifa meira af Tókýó eftir þínu höfði. Byrjaðu morguninn á Tsukiji-markaðnum, þar sem ferskt sjávarfang og japanskt götufæði bíða. Um hádegisbil er tilvalið að heimsækja teamLab Borderless, stafrænt listasafn sem er engu öðru líkt. Langar þig að setjast undir stýri? Þá geturðu bókað gokart-ferð um götur Tókýó sem valfrjálsa viðbót. Um kvöldið mælum við með Shinjuku og örmjóum sundum Golden Gai. Dagskrá: Frjáls dagur → Tsukiji-markaðurinn að morgni → valfrjálst: teamLab Borderless eða gokart → Shinjuku og Golden Gai um kvöldið.

Japan, 〒104-0045 Tokyo, Chuo City, Tsukiji, 4-chōme−16 および6丁目一部
Hugmynd fyrir morguninn. Á ytri markaðnum í Tsukiji bíða ferskt sushi, sjávarfang og japanskt götufæði. Best er að mæta snemma.

Japan, 〒106-0041 Tokyo, Minato City, Toranomon, 5-chōme−9−9 Azabudai Hills Garden Plaza B, B1
4 nætur
Elsta hof Tókýó, stofnað á 7. öld. Hofið er upplýst á kvöldin og þá er stemningin sérstaklega falleg.

1-chōme-36-3 Asakusa, Taito City, Tokyo 111-0032, Japan
Verslunargatan sem liggur að Sensō-ji, með minjagripum og japönsku götusnarli.

1-chōme-1-2 Oshiage, Sumida City, Tokyo 131-0045, Japan
Valfrjálst og ekki innifalið í verði. Hæsti turn Japans, í göngufæri frá hótelinu. Útsýnið yfir upplýsta Tókýó að kvöldi er ógleymanlegt.
Miðstöð götutísku og ungmennamenningar í Tókýó — litríkar búðir á Takeshita-götu og glæsilegar verslanir á Omotesando.

21 Udagawacho, Shibuya, Tokyo 150-0042, Japan

Tokyo
Valfrjálst og ekki innifalið í verði ferðarinnar. Fyrir bílaáhugafólkið: kvöldferð í farþegasæti japanskra sportbíla um hraðbrautir Tókýó og á hið goðsagnakennda Daikoku-bílastæði, samkomustað JDM-senunnar. Hafðu samband ef þú vilt bóka.
Valfrjálst og ekki innifalið í verði. Stafrænt listasafn þar sem ljós og hreyfing renna saman í herbergjum án landamæra. Mælt er með að kaupa miða fyrirfram.

Tokyo
Valfrjálst og ekki innifalið í verði ferðarinnar. Klukkutíma gokart-ferð með leiðsögn um götur Tókýó frá Akihabara, skammt frá hótelinu. Ökumenn þurfa alþjóðlegt ökuskírteini (IDP) ásamt íslensku ökuskírteini. Bókanir eru óendurgreiðanlegar. Hafðu samband ef þú vilt bóka.

Shinjuku City, Tokyo, Japan
Hugmynd fyrir kvöldið. Neonljós, risaskjáir, veitingastaðir og næturlíf í einu líflegasta hverfi Tókýó.

Japan, 〒160-0021 Tokyo, Shinjuku City, Kabukichō, 1-chōme−1−6 あかるい花園 五番街
Hugmynd fyrir kvöldið. Milli skýjakljúfa Shinjuku leynist völundarhús örmjórra sunda með pínulitlum börum — gamaldags og ógleymanleg hlið á næturlífi Tókýó.

Nagoya
Dagur 4
Með hraðlest til Nagoya
Fimmtudagur 8. apríl 2027. Við kveðjum Tókýó og höldum með Shinkansen-hraðlestinni til Nagoya, heimaborgar japanska bílaiðnaðarins. Eftir innritun gefst tími til að heimsækja Toyota Commemorative Museum, steinsnar frá Nagoya-lestarstöðinni, eða Nagoya-kastala með gylltu shachihoko-fiskunum á þakinu. Um kvöldið förum við yfir keppnishelgina: ferðirnar á brautina, samkomustaði og allt sem hjálpar hópnum að njóta helgarinnar. Dagskrá: Frá hóteli á lestarstöð → Shinkansen frá Tókýó til Nagoya → frá stöð á hótel → innritun → valfrjálst: Toyota Commemorative Museum eða Nagoya-kastali → kynning á keppnishelginni.
Rail
Hraðlest frá Tókýó til Nagoya. Ferðir milli hótela og lestarstöðva samkvæmt dagskrá. Nánari tímasetningar og fyrirkomulag farangurs verða gefin síðar.

Japan, 〒451-0051 Aichi, Nagoya, Nishi Ward, Noritakeshinmachi, 4-chōme−1−35 産業技術記念館内
Valfrjálst og ekki innifalið í verði. Steinsnar frá Nagoya-lestarstöðinni: safn Toyota sýnir hvernig fyrirtækið þróaðist úr vefnaðarvélum í bílarisa, með vélum í gangi og sýningum um verkfræðina að baki.

1-1 Honmaru, Naka Ward, Nagoya, Aichi 460-0031, Japan
Valfrjálst og ekki innifalið í verði. Eitt helsta kennileiti borgarinnar, þekkt fyrir gyllta shachihoko-fiskana á þakinu og innsýn í sögu samúræjanna.
Dagur 5
Fyrsti dagurinn á Suzuka
Föstudagur 9. apríl 2027. Við förum saman á Suzuka-brautina og upplifum fyrsta dag keppnishelgarinnar. Á dagskrá eru æfing og tímataka fyrir sprettkeppnina. Gefðu þér líka tíma til að skoða svæðið og njóta stemningarinnar meðal aðdáenda áður en við snúum aftur til Nagoya. Dagskrá: Brottför frá hóteli í Nagoya → Suzuka Circuit → æfing og tímataka fyrir sprettkeppnina → aftur á hótelið í Nagoya.
Bus
Sameiginleg ferð á keppnissvæðið. Upplýsingar um brottfarartíma og samkomustað verða gefnar þegar dagskrá og akstursáætlun liggja fyrir.

RGXQ+7G, 7992 Inouchō, Suzuka, Mie 510-0201, Japan
Æfing og tímataka fyrir sprettkeppnina. Tímasetningar keppnishelgarinnar verða staðfestar síðar; almennur opnunartími staðarins er ekki keppnisdagskrá. Miðaflokkur og reglur um sæti verða tilgreind síðar.
Dagur 6
Sprettkeppni og tímataka
Laugardagur 10. apríl 2027. Annar dagur á Suzuka býður upp á bæði sprettkeppni og tímatöku fyrir japanska kappaksturinn. Við fylgjumst með baráttunni á brautinni og höldum svo aftur til Nagoya. Eftir heimkomu gefst færi á að ræða helstu atvik dagsins með hópnum. Dagskrá: Brottför frá hóteli í Nagoya → Suzuka Circuit → sprettkeppni → tímataka fyrir aðalkeppnina → aftur til Nagoya.
Bus
Sameiginleg ferð á keppnissvæðið. Brottfarartími og samkomustaður verða tilgreind síðar.

RGXQ+7G, 7992 Inouchō, Suzuka, Mie 510-0201, Japan
Bus
Dagur 7
Japanski kappaksturinn
Sunnudagur 11. apríl 2027. Stóri dagurinn er runninn upp. Við höldum á Suzuka og fylgjumst með japanska kappakstrinum í einstöku andrúmslofti. Að keppni lokinni förum við aftur á hótelið í Nagoya og eigum kvöldið þar. Dagskrá: Brottför frá hóteli í Nagoya → Suzuka Circuit → japanski kappaksturinn → aftur á sama hótel í Nagoya.
Bus
Sameiginleg ferð á keppnissvæðið. Brottfarartími og samkomustaður verða tilgreind síðar.

RGXQ+7G, 7992 Inouchō, Suzuka, Mie 510-0201, Japan
Bus
Sameiginleg heimferð eftir kappaksturinn á sama hótel í Nagoya. Gera þarf ráð fyrir umferð og bið við keppnissvæðið.
Dagur 8
Brottför eða áframhald í Japan
Mánudagur 12. apríl 2027. Eftir sjö nætur í Japan tékkum við út af hótelinu í Nagoya og höldum saman með Shinkansen til Tókýó, þar sem ferðinni lýkur. Þaðan liggur leiðin á Narita-flugvöll fyrir kvöldflugið heim, en einnig er hægt að óska eftir framlengingu í Japan. Dagskrá: Útritun af hótelinu í Nagoya → Shinkansen til Tókýó → á eigin vegum á Narita-flugvöll eða framlenging í Japan.
Rail
Hraðlest til Tókýó eftir útritun. Nánari tímasetningar og fyrirkomulag farangurs verða gefin síðar.
Bus
Sameiginleg heimferð eftir dagskrá. Gera þarf ráð fyrir umferð og bið við keppnissvæðið.
Sameiginleg heimferð eftir dagskrá. Gera þarf ráð fyrir umferð og bið við keppnissvæðið.